Námsgreinar og viðfangsefni

Nemendur ABC skólans munu takast á við fjölmargar námsgreinar og viðfangsefni, bæði hér heima og á vettvangi. Smelltu á fyrirsögn hér fyrir neðan til að lesa meira um viðkomandi námsgrein.

Þróunarhjálp

Markmið eru að upplýsa nemendur um:

  • fátækt og önnur vandamál sem þróunarlönd standa frammi fyrir
  • mannréttindi og markmið Sameinuðu þjóðanna til að bæta hag bágstaddra barna
  • helstu þróunar- og hjálparstörf Íslendinga
  • þætti sem hafa ber í huga þegar hjálp er veitt og unnið að þróunarsamvinnu

Viðfangsefni:

  • Fátækt - orsakir, afleiðingar og úrræði
  • Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
  • Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
  • Verkefni og þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna og hjálparstofnana á Íslandi
  • Ýmsar hliðar þróunarhjálpar og þróunarsamvinnu
Framandi lönd og menning

Markmið eru að nemendur:

  • skyggnist inn í það framandi mannlíf og verkefni sem blasa við hjálparstarfsfólki á vettvangi
  • geri sér grein fyrir helstu vandamálum þriðja heimsins og hvaða úrræði eru til staðar
  • þjálfist í að afla upplýsinga um ástand fátækra landa og greina hvar mest er þörf á að hefja hjálparstarf
  • geri sér grein fyrir hugsunarhætti, siðum og normum til að brjóta ekki viðteknar venjur né særa eða móðga innfædda þegar á vettvang er komið

Viðfangsefni:

  • Mannfræði
  • Lönd í Afríku og Asíu sem ABC starfar í
  • Hópverkefnið: Ástandsgreining
  • Úrræði og hagnýt hjálp
  • Frásagnir fólks er kemur í heimsókn sem hefur búið og unnið við hjálparstörf erlendis
Efling samskipta

Markmið eru að nemendur efli samskiptahæfni sína með því að:

  • skilja ólíkar manngerðir
  • skilja sjálfan sig betur
  • skilja aðra betur
  • auka aðlögunarhæfni sína

Viðfangsefni: Námskeiðið Efling samskipta

Með bros á vör

Markmið eru að nemendur:

  • læri að setja sér skýr markmið og ná árangri í starfi
  • verði hæfari til að standa fyrir fjáröflun til hjálparstarfs

Viðfangsefni: Kynningar- og sölunámskeiðið Með bros á vör

Innsýn í kennslufræði

Markmið eru að nemendur:

  • kynnist þeirri kenningu um að allir einstaklingar búi yfir fjölgreindum og þar af leiðandi læra þeir og þroskast með mismunandi hætti
  • skilji mikilvægi fjölbreyttra uppeldis- og kennsluhátta
  • fái góð ráð og tækni til að ná árangri í starfi fyrir ABC

Viðfangsefni:

  • Hinn góði kennari
  • Fjölgreindarkenning H. Gardners
  • Hugarkort
Þar sem enginn er læknir

Markmið eru að nemendur:

  • kunni skil á helstu þáttum til varðveislu heilsu og lífs
  • þekki grunnatriði skyndihjálpar og verði betur undir það búnir að veita hjálp í viðlögum
  • geti miðlað þekkingu sem stuðlar að bættri heilsu

Viðfangsefni:

  • Heilbrigðisfræði á einangruðum stöðum þar sem samfélög búa við frumstæðar aðstæður. Stuðst er við bókina Where there is no doctor, eftir David Werner.
  • Grunnatriði í skyndihjálp.
Næringar- og sjúkdómafræði

Markmið eru að nemendur:

  • þekki fæðuhringinn
  • fái grunnþekkingu í næringarfræði og þekki undirstöður hollrar fæðu
  • geti leiðbeint og upplýst skjólstæðinga sína um heilbrigt fæðuval
  • kunni að bregðast við vannæringu barna
  • fræðist um helstu sjúkdóma þriðja heimsins
  • öðlist kunnáttu til að verjast og bregðast við þeim sjúkdómum

Viðfangsefni:

  • Nauðsynleg næringarefni fyrir heilbrigðan líkama
  • Næringarskortur og afleiðingar hans
  • Helstu fæðutegundir þriðja heimsins
  • Helstu sjúkdómar þriðja heimsins
  • Vannæring og iðraormar
  • Sjúkdómavarnir og önnur ráð
Barnasálfræði, umönnun og sálgæsla

Markmið eru að nemendur:

  • þekki atriði sem skipta máli hvað varðar andlegt og líkamlegt heilbrigði barna
  • geri sér grein fyrir hugsanlegu sálartjóni sem börn hafa orðið fyrir, s.s. vegna ofbeldis, misnotkunar, eineltis, vanrækslu og illrar meðferðar
  • átti sig á hugsanlegri hegðun barna sem hafa fengið illa meðferð og læri að koma fram við þau á viðeigandi hátt

Viðfangsefni:

  • Þroskasálfræði
  • Áfallasálfræði
  • Barnasálgæsla
  • Barnaumönnun
  • Málþroski barna
ABC

Markmið eru að nemendur:

  • kynnist hugsjón og sögu ABC
  • fái innsýn í starfið
  • verði hæfir erindrekar ABC

Viðfangsefni:

  • Hugsjón, saga og verkefni ABC barnahjálpar
  • Frásagnir og heimildir fólks sem hefur farið og kynnt sér starf ABC á vettvangi
Faðir hinna föðurlausu

Markmið eru að nemendur:

  • fái aukinn skilning á þeim gildumsem drífur hugsjón og starf ABC barnahjálpar
  • fái innsýn í grunn ABC – þ.e. ást Guðs til barna og geri sér betur grein fyrir hvernig Guð getur verið hinn fullkomni faðir fyrir munaðarlaus börn
  • kynnist boðskap Jesú Krists er snýr að umhyggju og gæsku til náungans - smbr. sagan um miskunnsama Samverjann
  • læri að þekkja ritningarvers sem ABC barnahjálp byggir á

Viðfangsefni:

  • föðurhjarta Guðs
  • líf, starf og boðskapur Jesú Krists um bróðurkærleika
  • perlur Biblíunnar sem eru mikilvægar fyrir starf ABC
Kristinn kærleikur í verki

Markmið eru að nemendur:

  • kynnist einstaklingum sem hafa markað spor í hjálparstarfi fyrr og síðar
  • komi auga á úthald þeirra og skilyrðislausa umhyggju fyrir öðrum
  • greini þætti sem nauðsynlegir eru til að hjálparstarf verði árangursríkt
  • glími við spurninguna: Hvers vegna að hjálpa?

Viðfangsefni:

  • Nokkrar heimsþekktar persónur sem hafa skarað fram úr í hjálparstarfi, áður fyrr og á okkar dögum
  • Kynning samtaka og félaga sem vinna að því að hjálpa og bæta lífskjör fólks
  • Kristið siðgæði
Undirbúningur fyrir starf á vettvangi og ferðir til framandi landa

Markmið eru að nemendur:

  • fái þekkingu á nauðsynlegum undirbúningi fyrir vettvangsferð og ferðir til framandi landa
  • verði meðvitaðir um mikilvæg öryggisatriði til að forðast háska á vettvangi
  • virði og tileinki sér verklags- og siðareglur ABC á vettvangi

Viðfangsefni:

  • Ferða- og kostnaðaráætlun
  • Bólusetningar og tryggingar
  • Vegabréfsáritanir
  • Farseðlar og gjaldeyrir
  • Öryggismál og varnir - sjúkdómar, sól og hiti, skordýr, spilling, glæpir o.s.frv.
  • Samskiptamál
  • Hugarfar og viðhorf
Verkmennt og hagnýt hjálp

Markmið eru að nemendur fái:

  • innsýn í verklega þætti sem geta komið að gagni við uppbyggingu og rekstur hjálparstarfs
  • hugmyndir og þekkingu sem hægt er að miðla á vettvangi til að bæta lífskjör

Viðfangsefni eru grunnþekking/innsýn í nokkur hagnýt mál, svo sem:

  • vatnsmál
  • brunnar
  • klósett- og rotþróagerð
  • orkuframleiðslu
  • ræktun matjurta og húsdýra til manneldis
  • umhverfisvernd og trjárækt
Helgarferð

Ferðin er í senn náms- og hópeflisferð þar sem nemendum gefst kostur á að kynnast betur í leik, starfi og hvíld. Það að búa þétt í skamman tíma er kjörið tækifæri til að styrkjast í tillitsemi og þjónustulund. Farið verður yfir hluta námsefnisins á helginni og verklega vikan kynnt. Gönguferð og kvöldvaka verður á laugardegi. Viðvera/þátttaka reiknast með í tímasókn nemenda.

Vettvangsferð

Vettvangsferð - námsferð – 3 vikur

Markmið eru að nemendur kynnist af eigin raun:

  • kjörum fátækra í þriðja heims ríki
  • starfi ABC í þágu bágstaddra barna
  • gefa nemendum tækifæri til að láta á það reyna hvort þeir geti hugsað sér að starfa á vettvangi í framtíðinni

Verkefni er þriggja vikna vettvangsferð til Kenýa og/eða Úganda:

  • ferðir í fátækrahverfi Nairóbí til að kynnast kjörum fátækra og að heimsækja styrktarbörn og fjölskyldur þeirra
  • þátttaka í starfi ABC í Afríku

ABC International school banner

Hugsjón ABC barnahjálpar er að:
  • Öll götubörn eignist heimili
  • Fátæk börn eigi kost á að ganga í skóla
  • Sjúk börn hafi aðgang að læknishjálp
Lesa meira...
Contact ABC Children's Aid International Senda fyrirspurn
ABC skólinn er hluti af starfi ABC barnahjálpar á Íslandi.

Póstlisti - skráðu netfang:

Vantar þig húsbúnað, bækur, föt, leikföng, prentara, skápa, rúm eða nánast hvað sem er? Kíktu í heimsókn á Nytjamarkaðinn :-)

abc_int

ABC skólinn er hluti af starfi ABC um allan heim.

Áhugavert á vefnum okkar: Frásögn frá KenýaABC skólinn á RÚVHugleiðing á Jólanótt 2011Ævintýralegt myndband frá Kenýa

cigarettes | Payday loans